Bach - Tónfundur

Eftir eitt og hálft ár í samkomutakmörkunum vildum við auka tækifæri nemenda á að koma fram og bjuggum til tónfundaröð yfir skólaárið og er hver tónfundur með þema.

Fyrsti tónfundurinn var haldinn þriðjudaginn 19.október og var hann með tónskáldaþema og varð Bach fyrir valinu.
Átta nemendur komu fram og var þetta mjög skemmtilegt og fjölbreytt.

Hérna koma myndir af hljóðfæraleikurunum sem stóðu sig frábærlega!

Alexardia Ava spilaði á sópran blokkflautuEmma Guðrún spilaði á píanóGuðný Lilja spilar á fiðluHafrún spilar á þverflautuHerdís Björg spilar á píanóHulda Guðbjörg spilar á píanóÞorsteinn Leó spilar á fiðluÓmar Azfar spilar á selló