Fræðslufundur og kynning á Suzukitónlistarnámi

   

Dagskrá

 

Kl. 10:00 – 11:00: Fræðslufundur fyrir foreldra barna í Suzukihljóðfæranámi

Guðmundur Kristmundsson formaður Suzukisambandins ræðir við foreldra og svara spurningum um Suzukitónlistarnám.

Kl. 11:00 - 12:00 Kynning - Suzuki tónlistarnám

Sigríður Aðalsteinsdóttir skólastjóri: Suzukitónlistarnám við Tónlistarskóla Rangæinga – deildin stofnuð

Ulle Hahndorf  Suzukisellókennari:  Uppbyggingu námsins, hlutverk „heimakennarans“ og tilgang Suzukihóptíma.

Guðrún Markúsdóttir Suzukipíanókennari við skólann: Aðferðina og höfundur kennslufræðinnar Shinichi Suzuki.

Kristína Jóhanna Dudziak Glúmsdóttir Suzukiblokkflautukennari við skólann: Suzukiþríhyrningurinn – samspil foreldra/foreldris (heimakennara), Suzukikennara og Suzukinemanda.

Chrissie Telma Guðmundsdóttir fiðluleikari og fiðlukennari við skólann: Að vera barn í Suzukitónlistarnámi

Foreldri Suzukinemanda við skólann segir frá reynslu sinni.

Við bjóðum gestum uppá kaffi og meðlæti eftir fræðslufundinn og á meðan kynningu stendur.

Hlökkum til að sjá sem flesta.