Kennaratónleikar Fiðlufjörs í dag - myndir

Í dag fóru fram kennaratónleikar Fiðlufjörs í Hvolnum. Það var boðið uppá tónlistarveislu fyrir þátttakenndur á námskeiðinu, gesti og gangandi. Flytjendur í dag voru þau Chrissie Telma fiðluleikari, Gróa Margrét Valdimarsdóttir fiðluleikari Ayisha de Sandino fiðluleikari og Einar Bjartur Egilsson píanóleikari. Einstaklega ánægjulegt er hversu fallega hinn nýji flygill í Hvolnum hljómaði hjá Einari Bjarti og fiðlurnar allar sömuleiðis. Það er sannarlega nærandi að fá þetta flotta tónlistarfólk í héraðið  og að geta notið tónlistar í þessum góða sal sem Hvolurinn er :-) Í dag kl. 17:00 verða svo tónleikar nemenda á námskeiðinu með Grétu Salóme :-) Á morgun laugardaginn 8. júní verða aftur tónleikar í Hvolnum. Þar koma fram félagar úr Íslenskum strengjum. Frumflutt verður verk eftir Unni Malín Sigurðardóttur söngkonu og tónskáld o.fl. https://www.facebook.com/events/350297712289341/ Allir velkomnir!