Krakkabarokk

Helgina 9.-11. maí kom kammerhópurinn Reykjavík Barokk og stóð fyrir æfingarhelgi með nemendum Tónlistarskóla Rangæinga, Tónlistarskola Árnesinga og kór Hvolsskóla. Afrakstur helgarinnar var sýndur á tónleikum í Selfosskirkju 11. maí. 

Það voru tólf nemendur Tónlistarskóla Rangæinga sem tóku þátt, en sex þeirra spiluðu einleik á tónleikunum, á fiðlu, víólu, blokkflautu, kirkjuorgel og positiv orgel. 

Tónleikarnir heppnuðust frábærlega og voru allir þátttakendur og áhorfendur mjög ánægðir og fóru glaðir heim!

 

/CLB