Komið er að síðustu kennsluviku í Tónlistarskóla Rangæinga, síðasti kennsludagur er 15. maí.
Tvær síðustu vikur höfum við geta haft skólastarfið með hefðbundum hætti þ.e. staðkennslu. Áður hafði verið fjarkennsla í nokkrar vikur, sem að sögn kennara gekk mjög vel og viljum við þakka nemendum og foreldrum þeirra kærlega fyrir góðan skilning og frábæra samvinnu.
Í ljósi aðstæðna verða skólaslit með óhefðbundnum hætti, hver kennari mun halda sín skólaslit með nemendum sínum.
Auðvitað viljum við síðan sjá sem flesta halda áfram tónlistarnámi á næsta skólaári, þá er um að gera að sækja um sem fyrst. Best er að gera það á heimasíðu https://schoolarchive.is/innskraning/ (innskráning forráðam.) hægt að innskrá sig með rafrænum skilríkum. Merkja við nemenda að hann ætli að halda áfram, hægt að skrá í athugasemdir ef óskað er eftir einhverjum breytingum.
Vallarbraut 16 | 860 Hvolsvöllur Símanúmer á Hellu: 487 5944 Símanúmar á Hvolsvelli: 488 4280 Netfang: tonrang@tonrang.is |
Skrifstofa skólans er opin frá Netfang: ritari@tonrang.is |
:)