Nemendatónleikar 28. og 29. október!

Fyrstu nemendatónleikar Tónlistarskóla Rangæinga verða haldnir nú í lok október. Föstudaginn 28. október  verða tónleikar í Safnaðarheimilinu á Hellu. Þar koma fram píanónemendur Laimu Jakaite og píanó-, selló- og fiðlunemendur Ülle Hahndorf. Tónleikarnir hefjast kl. 17:00. Allir velkomnir. Laugardaginn 29. október verða tónleikar í sal tónlistarskólans á Hvolsvelli. Þar koma fram píanó- og fiðlunemendur Guðrúnar Markúsdóttur og blokkflautunemendur Kristínar Jóhönnu Dudziak Glúmsdóttur. Tónleikarnir hefjast kl. 10:00. Allir velkomnir