Nótan, uppskeruhátíð Tónlistarskólanna fór fram nú í apríl á fimm stöðum um landið. Nemendur okkar komu fram á Tónleikum í Salnum í Kópavogi, síðast liðin laugardag, ásamt nemendum frá Tónlistarskólum frá Kraganum, Suðurlandi og Suðurnesjum.
Þau Bryndís Halla Ólafsdóttir og Steingrímur Ari Helgason voru fulltrúar Tónlistarskóla Rangæinga og stóðu sig frábærlega. Þau fluttu saman lagið Goddes eftir Laufey Lín Jónsdóttur en einnig flutti Steingrímur Ari sónötu eftir Beethoven á flygilinn.
Nótan er uppskeruhátíð tónlistarskólanna, sem eru um 80 talsins með um 14 þúsund nemendur. Tilgangur uppskeruhátíðarinnar er að beina kastljósinu að samfélagi tónlistarskóla og tónlistarnemenda með það að leiðarljósi að styrkja ungt tónlistarfólk og efla tónlistarmenntun og tónlistarlíf í samfélaginu!
/SRJ
|
Vallarbraut 16 | 860 Hvolsvöllur Símanúmer á Hellu: 487 5944 Símanúmar á Hvolsvelli: 488 4280 Netfang: tonrang@tonrang.is |
Skrifstofa skólans er opin frá Netfang: ritari@tonrang.is |
:)