Nótutónleikar 2016

Nótutónleikar 2016

Þann 17. febrúar síðast liðinn fóru fram Nótutónleikar Tónlistarskóla Rangæinga. Nemendur stóðu sig með mikilli prýði og geta öll verið stolt af sinni frammistöðu.

Tónleikarnir voru liður í forvali fyrir Nótuna 2016 sem er uppskeruhátíð tónlistarskóla á Íslandi. Hátíðin fer fram í apríl ár hvert.

Hátíðin er í raun þrískipt. Fyrst velur hver skóli atriði sem koma fram á svæðistónleikum sem haldnir eru í hverjum landsfjórðungi. Á svæðistónleikum eru síðan valin atriði sem koma fram á lokahátíð Nótunnar í apríl.

Þeir nemendur sem valdir eru í forvali innan skólanna eru alla jafna þeir nemendur sem sína jafnar framfarir tæknilega og músíklega, eru með góða verkefnastöðu, sinna náminu sínu mjög vel og ástunda öguð vinnubrögð.

Val á nemendum snýst ekki aðeins um tæknilega færni nemenda, sem þó þarf vissulega að vera til staðar, heldur er  megináhersla lögð  á heildrænt mat á öllum þáttum tónlistarnámsins, ekki síst tónlistarlegum skilningi, sem birtast þarf flutningi nemandans á tilteknu verki.

Við Tónlistarskóla Rangæinga verður þetta val inná forvalstónleika á vissan hátt handahófskennt því nemendur skólans eru heilt yfir góðir nemendur.

Upplýsingar um Nótuna má finna á heimasíðu Kennarasambands Íslands