Samúðarkveðja

László Czenek
László Czenek

László Czenek fyrrverandi skólastjóri Tónlistarskóla Rangæinga lést 21. febrúar s.l. eftir Covid-19 veikindi. Hann hafði nýlega náð sextugsaldri. László starfaði við skólann frá 1999 til 2014 eða samtals í 15 ár og þar af 13 ár sem skólastjóri. Hann lætur eftir sig eiginkonuna Hédi sem einnig starfaði við skólann samhliða eiginmanni sínum og tvö uppkomin börn, soninn Marton og dótturina Agnesi.

Við sendum Hédi og börnum hennar innilegar samúðarkveðjur og megi guð styrkja þau á þessum erfiðu tímum.

Guð blessi minningu László Czenek.

Er sárasta sorg okkur mætir
og söknuður huga vorn grætir
þá líður sem leiftur úr skýjum
ljósgeisli af minningum hlýjum
                                     (HJH)