Takk fyrir komuna í kaffið!

Hjartans þakkir til allra sem komu til okkar í kaffi í síðustu viku. Það var yndislegt að hitta ykkur öll og hlusta á börnin spila og syngja. Næsti viðuburður í tilefni af afmælisárinu er þann 18. nóvember. Þá verða afmælistónleikar með góðum gestum og kennurum skólans í Hvolnum. Þeir tónleikar hefjast kl. 18:00. Allir hjartanlega velkomnir.