Til hamingju Sæbjörg Eva Hlynsdóttir!

Í gær, þann 15. mars, hélt Sæbjörg Eva Hlynsdóttir framhaldsprófstónleikana sína í Safnaðarheimilinu á Hellu. Tónleikarnir voru sannarlega vel heppnaðir og það geislaði af þessum efnilega nemanda. Sæbjörg Eva hefur nú lokið framhaldsprófi að fullu frá skólanum og lýkur námi sínu formlega í vor á skólaslitum. Við óskum henni og kennara hennar hjartanlega til hamingju með áfangann. Á myndinni eru frá vinstri Guðjón Halldór Óskarsson meðleikari Sæbjargar Evu, þá Sæbjörg sjálf og svo kennarinn hennar á þverflautuna, Maríanna Másdóttir. Sæbjörg Eva með kennurum sínum eftir afar vel heppnaða tónleika.