Tónleikar hjá Söngdeild

Nú á dögunum er verið að vinna verkefni tengt söngleiknum Vesalingunum eða Les Misérables á frummálinu. Það eru eldri nemendur úr samsöngshópi Tónlistarskóla Rangæinga undir stjórn Aðalheiðar Margrétar Gunnarsdóttur söngkennara. Skemmtileg vinna hefur verið og fengum við Þór Breiðfjörð sem söng aðalhlutverk söngleiksins er Þjóðleikhúsið setti upp árið 2012 í heimsókn til aðstoðar við túlkun á sviði. Friðrik Erlingsson leikstjóri setti saman leiðandi texta með lögunum sem sögumaðurinn Pétur Halldórsson mun lesa. Guðjón Halldór Óskarsson sér um meðleik. Sýningar verða á konudaginn, sunnudaginn 23. febrúar í Hvolnum, félagsheimilinu á Hvolsvelli. Fyrri sýning er kl. 15.00 og sú síðari kl. 17.00. Generalprufa er fyrir nemendur og starfsfólk tónlistarskólans kl. 13.00 föstudaginn 21. febrúar og hvetjum við ykkur til að koma og njóta!