Upphaf skólaársins 2019 - 2020

Ágætu nemendur, foreldrar og/eða forráðamenn! Umsóknir um skólavist skólaárið 2019 - 2020 hafa verið afgreiddar. Staðfestingargjöld voru send til innheimtu í byrjun júlí. Ógreiddar kröfur voru felldar niður 6. ágúst. Enn eru laus pláss á fiðlu, trommur, rafbassa, Suzukipíanó, Suzukiblokkflautu og þverflautu. Umsóknir: sjá www.tonrang.is "Skrá í tónlistarnám". Skóladagatal fyrir árið 2019 - 2020 gerir ráð fyrir fyrsta kennsludegi í kring um 27. ágúst. Fyrir þann tíma verða kennarar búnir að hafa samband við nemendur, foreldra og/eða forráðamenn vegna stundaskrár. Opnunartími skrifstofu er frá 9:00 - 11:30 mánudaga til fimmtudaga. Skrifstofa skólans er lokuð til 15. ágúst. Netfang ritara er tonrangrit@tonrang.is. Upplýsingar um nám og umsóknir: www.tonrang.is Með góðri kveðju og ósk um gott og gefandi skólaár, Skólastjóri