Á skólaárinu 2016 -2017 fagnar Tónlistarskóli Rangæinga 60 ára afmæli sínu. Af því tilefni verður efnt til viðburða í október, nóvember og á vörönn 2017.
Fyrstu viðburðir eru afmæliskaffi. Íbúum sveitarfélaganna er boðið að koma til okkar í afmæliskaffi í útiú skólans. Þar verður boðið uppá kaffi og nemendur skólans flytja fjölbreytta tónlist. Allir velkomnir!
Þann 18. nóvember verður haldin afmælishátíð í Hvolnum þar sem fram koma nokkrir "gamlir" nemendur skólans sem hafa gert tónlistina að atvinnu. Á tónleikunum koma einnig fram nokkrir af kennurum skólans. Afmælishátíðin verður auglýst nánar síðar.
Vallarbraut 16 | 860 Hvolsvöllur Símanúmer á Hellu: 487 5944 Símanúmar á Hvolsvelli: 488 4280 Netfang: tonrang@tonrang.is |
Skrifstofa skólans er opin frá Netfang: tonrangrit@tonrang.is |
:)