Fréttir

Nýr skólastjóri ráðinn.

Á fundi stjórnar Tónlistarskóla Rangæinga 22. maí var tekin ákvörðun um ráðningu í starf skólastjóra Tónlistarskóla Rangæinga sem auglýst var á dögunum. Niðurstaðan var að ráða Söndru Rún Jónsdóttur í starfið og mun hún hefja störf frá og með 1. ágúst 2020. Sandra Rún Jónsdóttir er 26 ára og er með bakkalár gráðu frá Listaháskóla Íslands í skapandi tónlistarmiðlun auk meistaragráðu frá Berklee Collage of Music (Global Entertainment and Music Business). Hún starfar nú sem skóla- og hljómsveitarstjóri hjá Skólahljómsveit Austurbæjar en hefur einnig sinnt tónlistarkennslu við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og Tónlistarskólann í Garði auk þess að starfa sem deildarfulltrúi við Tónlistardeild Listaháskóla Íslands. Hún stundaði tónlistarnám frá barnsaldri og leikur á blásturshljóðfæri. Hún hefur tekið þátt í Lúðrasveitarstarfi, spilað með Léttsveit og starfað með Bjöllukór Tónlistarskólans í Reykjanesbæ. Þá hefur Sandra Rún tekið virkan þátt í margvíslegu kóra- og leikhússtarfi.
Lesa meira

Lok skólaársins

Síðasti kennsludagur eru föstudagurinn 15. maí 2020.
Lesa meira

Starfsdagar

Lesa meira

Masterclass

Eldri samsöngur í Tónlistarskóla Rangæinga vinnur nú í lögum úr söngleiknum Vesalingarnir, Les Misérables og munu flytja það í Hvolnum á þessarri önn, feb/mars.
Lesa meira

Gleðileg jól

Starfsfólk Tónlistarskóla Rangæinga sendir nemendum sínum og fjölskyldum þeirra hugheilar jólakveðjur með þökk fyrir árið sem er að líða. Sjáumst hress á nýju ári, fyrsti kennsludagur verður mánudaginn 6.
Lesa meira

Tónleikar í Midgard

Þann 14. desember næstkomandi verða glæsilegir tónleikar á Midgard Base Camp, Hvolsvelli.Þar koma fram Hera Björk, Unnur Birna og Björn Thoroddsen ásamt hljómsveit.Þau munu fara með okkur í ævintýralegt ferðaleg í tónum og tali þar sem þau taka sín uppáhaldsjólalög, þessi klassíku og nokkrar öðruvísi perslur sem fá að fljóta með.Þau segja einnig kostulegar sögur frá desembermánuðum þeirra enda hafa verið lítið heima við þann mánuðinn frá því þau fóru að koma reglulega fram. Hljómsveitina skipa Skúli Gíslason trommurSigurgeir Skafti Flosason bassiGaman er frá því að segja að þeir ásamt Unni Birnu kenna öll við Tónlistarskóla Rangæinga.Óborgarnleg gleði og skemmtistund í Midgard Base Camp þann 14.desember næstkomandi.
Lesa meira

Jólatónleikar

Jólatónleikar Tónlistarskóla Rangæinga verða miðvikudaginn 11. desember kl. 18:00 í Hvolnum.  Söng- og hljóðfæranemendur skólans flytja fjölbreytta dagskrá, aðallega tónlist tileinkaða jólunum þannig að allir ættu að komast í sannkallað jólaskap.
Lesa meira